Starfsfólk

Aldís Líf Vigfúsdóttir
Aldís Líf Vigfúsdóttir
Stuðningur
Eldri drengjakjarni
Aldís vinkona okkar er skáti. Hún hefur unnið mörg ár með börnum. Byrjaði á Laufásborg 2012. Hún lærði hönnun frá TÍ og hefur sótt mörg námskeið á Greiningarstöðinni. ❤
Alfa Jóhannsdóttir
Alfa Jóhannsdóttir
Stoðþjónusta
Alfa er systir Asks okkar og gaman að hafa þessi frábæru systkini í hópnum. Alfa verður í stoðþjónustu með okkur. Alfa hefur áður unnið með börnum og lærir nú Hjallastefnuna á Laufásborg. ❤
Ari Hálfdán Aðalgeirsson
Ari Hálfdán Aðalgeirsson
Hópstjóri
Eldri stúlknakjarni
Ari vinur okkar kom á Laufásborg 2011, þökk sé Tinnu konunni hans og vinkonu okkar. Ari er tónskáld. ❤
Arna Guðrún Jónsdóttir
Arna Guðrún Jónsdóttir
Hópstýra
Eldri drengjakjarni
Arna vinkona okkar hefur unnið í Hjallastefnunni síðan 2001 og á Laufásborg frá 2009. Arna er með BA próf í sálfræði og hafði áður unnið við atferlismótun barna og haldið námskeið í SOS aðferðinni. ❤
Askur Jóhannsson
Askur Jóhannsson
Stoðþjónusta
Askur vinur okkar er ungur KR -ingur og bróðir Ölfu okkar. Hann hefur unnið á Laufásborg síðan 2019. Hann er í dag skákkennari með Omari, stoðþjónusta og er sá sem lokar Hamingjuhöllinni alla daga, þökkum fyrir það ❤
Cheick Ahmed Tidiane Bangoura
Cheick Ahmed Tidiane Bangoura
Hópstjóri
Eldri drengjakjarni
Cheick Bangoura hefur búið á Íslandi í 20 ár. Við kynntumst Cheick í gegnum námskeið sem hann hélt fyrir okkur á djembei trommu. Við erum mjög glöð að fá hann í okkar góða hóp. Hann er menntaður bæði í tónlist og dansi frá Gienu og er kærleiksríkur vinur sem mun auka enn frekar tónlist og dans í Hamingjuhöllinni. ❤
Dagbjört Gunnarsdóttir
Dagbjört Gunnarsdóttir
Hópstýra
Yngri stúlknakjarni
Dagbjört vinkona okkar er komin aftur eftir hlé og fögnum við góðri vinkonu. Dagbjört er með BA í myndlist og fatahönnun ❤
Elizabeth Joann Nunberg
Elizabeth Joann Nunberg
Enskukennari
Elizabeth hefur þróað enskukennslu fyrir Hjallastefnuna. Núna leiðir hún garðyrkustarfið okkar. Hún kennir í lotum hjá okkur. Hún er frábær. ❤
Elísabet Árný Þorkelsdóttir
Elísabet Árný Þorkelsdóttir
Hópstýra
Eldri stúlknakjarni
Elísabet vinkona okkar hefur unnið með okkur síðan 2001 og kom á Laufásborg 2008. Hún er leikskólakennari að mennt, frábært Hjallaljós ❤
Eyrún Guðmundsdóttir
Eyrún Guðmundsdóttir
hópstýra
Yngri drengjakjarni
Eyrún vinkona okkar byrjaði á Laufásborg 2017. Hún er dýravinkona, vann lengi á dýraspítala og við tamningar á hestum og við hundaþjálfun. ❤
Gerða Theodóra Pálsdóttir
Gerða Theodóra Pálsdóttir
Hópstýra
Eldri stúlknakjarni
Við erum mjög stolt af þvi að fá Gerðu í hópinn en hún er og hefur verið amma á Laufásborg. Gerða er ferðafræðingur og þjóðfræðingur sem elskar að prjóna. ♥️
Jensína Edda Hermannsdóttir
Jensína Edda Hermannsdóttir
Skólastýra
Eldri drengjakjarni
Jensa vinkona okkar hefur unnið eftir Hjallastefnunni síðan á siðustu öld eða frá 1997 og byrjaði 2006 á Laufásborg. ❤ Jensa er orðin amma á Laufásborg og það er ævintýri.
Katrín Jóhannesdóttir
Katrín Jóhannesdóttir
Stoðþjónusta
Kata er grunnskólakennari að mennt og hefur búið erlendis síðastliðin 16 ár, í Svíþjóð og Kanada. Nú er hún komin í okkar góða hóp og við þökkum fyrir það. ❤
Kolbrún Björk Jensínudóttir
Kolbrún Björk Jensínudóttir
Sérkennsla
Kolla er dóttir Jensu og hefur alist upp við Hjallastefnuna. Kolla hefur verið að vinna á Laufásborg í gegnum árin með námi. Hún er barnasálfræðingur að mennt og komin til líðs við okkur sem er alveg frábært ❤
Marcin Józef Stachewicz
Marcin Józef Stachewicz
Matráður III
Eldri drengjakjarni
Marcin vinur okkar er listamaður og kemur frá Pollandi. Til gamans má geta þess að hann býr til fallegar brúður sem heita Friends from the moon. ❤
Matthildur H Víkingsdóttir
Matthildur H Víkingsdóttir
Hópstýra
Yngri drengjakjarni
Kæra vinkona Matta okkar er mikið Hjallaljós og unnið síðan 2001 með okkur mörgum. Gaman saman. ❤
Matthildur L Hermannsdóttir
Matthildur L Hermannsdóttir
Skólastýra
Matthildur vinkona okkar byrjaði í Hjallastefnunni árið 1997 og hefur verið á Laufásborg síðan 2000. Hún er leikskólakennari og einnig dáleiðari. ❤ Elsku Matthildur er í leyfi.
Omar Hamed Aly Salama
Omar Hamed Aly Salama
Skákkennsla
Omar vinur okkar byrjaði á Laufásborg 2009. Hann er skákmaður, unnið mikið fyrir FIDE, þjálfað landslið og er skákkennari. Hann er viðskiptafræðimenntaður. ❤
Ólafía Sturludóttir
Ólafía Sturludóttir
Hópstýra
Yngri stúlknakjarni
Lóa er Yogakennari og við erum heppin að fá hana í okkar hóp. Hún hefur reynslu af leikskólastarfi og er tveggja barna móðir og er mætt til að mennta sig í Hjallastefnufræðunum með okkur. Frábært eða frábært. ❤
Ólöf Kristín Helgadóttir
Ólöf Kristín Helgadóttir
Hópstýra
Eldri stúlknakjarni
Ólöf vinkona okkar byrjaði á Laufásborg 2019. Hún hefur mikill gleðigjafi og hefur unnið áður með börnum. Hún er með BA í myndlist. ❤
Sigrún Guðlaugsdóttir
Sigrún Guðlaugsdóttir
Hópstýra
Yngri stúlknakjarni
Sigrún vinkona okkar byrjaði á Laufásborg 2009. Sigrún er gleðigjafi og við erum glöð að hún snéri aftur eftir háskólanám. ❤
Solveig Bjarnadóttir
Solveig Bjarnadóttir
Hópstýra
Yngri stúlknakjarni
Solveig vinkona okkar byrjaði á Laufásborg 2015. Hún er með BA í uppeldis og kennslufræðum frá Danmörku. ❤
Tinna Eir Kjærbo
Tinna Eir Kjærbo
hópstýra
Eldri drengjakjarni
Tinna vinkona okkar byrjaði á Laufásborg 2009 og er mikið Hjallaljós. Hún er með iðnmenntun. ❤
Þórir Georg Jónsson
Þórir Georg Jónsson
Hópstjóri
Yngri drengjakjarni
Þórir vinur okkar kom fyrst í hópinn árið 2010. Nú er það gleðiefni að hann mun vinna samhliða námi. Þórir er grafískur hönnuður og hefur unnið við það. Einning hefur hann mikla reynslu af því að vinna við tónlist á alla mögulega vegu. Semja, taka upp, hljóðblanda, hljóðjafna, gefa út o.s.frv. ❤
Þórunn Eva Hallsdóttir
Þórunn Eva Hallsdóttir
Hópstýra
Yngri drengjakjarni
Þórunn vinkona okkar byrjaði á Laufásborg 2012. Hún er með BA í myndlist og lærði líka í Berlín. ❤