Skolakerfi.is
Tilnefning til Foreldraverðlaunanna ❤
Við viljum þakka innilega fyrir tilnefninguna til foreldraverðlauna Heimilis og Skóla fyrir forritið http://www.skolakerfi.is/
Við erum alltaf jafn stolt og glöð með forritið sem Hermann Björgvin Jensuson forritaði með okkur fyrir VALTÍMANA. Hann hafði komið inn sem sumardrengur og í janúar 2014 kom hann fram með þetta. Það að halda valfundi með ipad og að skráningin sé komin á vefforit, skolakerfi.is og ná í samtalningu fyrir hvert barn á augnabliki er snilld finnst okkur. Uppfærsla varð á forritinu haustið 2026 sem er svakalega flott útgáfa. Það er virkilega gaman að vinna með þetta vefforrit.
Okkur þykir mjög mikilvægt að skila skráningum til foreldra .Dagskráin okkar byggir á hópatímum og valtímum og báðir þættir eru skráðir á hverjum degi og að skila samantekt á vali barnanna til foreldra eru gæði því þetta eru upplýsingar sem við finnum að allir foreldrar kunna svo vel að meta, sjá val barnsins síns.
Skráning í skólastarfi er fagmennska og erum við stolt af þessu framlagi okkar til að gera líka starfsumhverfi kennara faglegra og vinna með upplýsingar.
