Franska
Frönskukennslan hófst í samstarfi við Solveigu Simha sem var foreldri á Laufásborg. Í dag hafa þau elsku Adrien og Alexía einnig foreldrar á Laufásborg tekið að sér kennsluna. Við erum mjög þakklát fyrir það og þau hafa farið í sporin hennar Solveigar og gert þetta listavel.
Við hófum samstarf við Alliance 2013 um frönskukennslu fyrir 5 ára börnin. Kennari var Sólveig Simha foreldri á Laufásborg. Þetta er frumkvöðlastarf í leikskólastarfi og fer fram í gegnum leik og söng. Börnin hafa kynnst franskri menningu og hefur frönskukennslan skilað sér vel inn á heimilin og skapað áhuga fyrir franskri tungu og því sem franskt er. Einnig er unnið með franskar þjóðsögur í gegnum brúðuleikhús tímunum. Markmiðið með kennslunni er að kveikja áhuga á tungumáli, hafa gaman, og að tjá sig við frönskumælandi jafnaldra og kennslan snýst því um þeirra daglega líka. Gefa þeim leiðir til að tjá sig og vera ófeimin að mæta öðrum börnum og láta ekki ókunnug tungumál stoppa sig. Þetta er kjöraldur til að kenna tungumál og ná hreimnum..
Foreldrar fá póst heim um hverja kennslustund og upptökur til að tengja við heimilin.

