Skákfélag Laufásborgar

Skák hefur verið kennd á Laufásborg siðan 2008. Það hefur verið lögð áhersla á skákkennslu á eldri kjörnunum. 3-5 ára.

Hér er heimasíða Skákfélags Laufásborgar, þar eru allar upplýsingar fyrir áhugasöm en skákkennslan er frumkvöðlastarf á heimsmælikvarða og við erum mjög stolt af því. Skákfélag Laufásborgar er stofnað af foreldrum skákbarna og við eigum foreldrum mikið að þakka. Foreldrafélag skákbarnanna heitir Hrókur alls fagnaðar og þau vinna mikið sjálfboðaliðastarf til að gera ferðir á EM í skólaskák að veruleika. Ómetanlegt samstarf og sannarlega gott dæmi um það hvað Laufásborginni er lyft af kennurum og foreldrum. Saman erum við sterkari!

Við erum líka með Facebook síðu Skákfélag Laufásborgar.

825261488_2865463243820556_8017325499741170991_n.jpg
Guðni forseti fær heimboð á Laufásborg
Sérstök verðlaun.jpg
Sérstök verðlaun til heiður Skákfélagi Laufásborgar!!

Okkur hlotnaðist sá heiður að fá Hvatningarverðlaun Reykjavíkurborgar 2015

Omar tekur við Hvatningarverðlaunum Reykjavíkurborgar


gjafakort fjögur saman mockup.jpg

Þessar fallegu setningar eru til sölu til styrktar Skákfélagi Laufásborgar. Haraldur Jónsson listamaður vann þær með börnum. Ótrúlega fallegt og við þakklát fyrir ómetanleg framlög foreldra.