Eldhús
Í fallega eldhúsinu okkar eru Ragnheiður og Marcin ómetanleg stoðþjónusta. ♥️ Ragnheiður er menntuð myndlistarkona, nýtir sköpunargáfu sína óspart við dagleg störf sín í eldhúsinu.
Allur matur er unnin frá grunni með hjartanu sem er ómetanlegt. ♥️
þegar Hamingjuhöllin ehf tók við rekstri Laufásborgar í janúar 2026 stigum við það gæfuspor að fá elsku Röggu til liðs við okkur. Við fórum líka í framkvæmdir og endurnýjuðum öll tæki, þar áttum við sannarlega hauka í horni sem iðnarmennirnir voru.
Hér eru til gamans myndir af framkvæmdunum okkar í janúar 2026.
Lífrænt er alltaf fyrsti kostur í innkaupum. “Ég leitast við að gleðja börn og starfsfólk Laufásborgar með matnum, mest spennandi finnst mér brögð frá kryddum miðausturlanda, ilmandi hlý krydd sem gefa matnum dýpt og örlítið sætt bragð”. Salatið nýtur alltaf meiri og meiri vinsælda og er það gleðilegt”
Birgjarnir eru vel valdir og erum við mjög stolt af því hversu lífrænn maturinn er og persónulegt samband við eigum við birgjana okkar. Við finnum mikla velvild og það fólk sem við tengjum við vinnur með hjartanu og það einkennir lífræna búskapinn, það er hugsjónastarf. ♥️
Dagurinn byrjar á lífrænu heilsuskoti á kaffistofunni þar sem starfsfólk og foreldrar fá sér heilsuskot. Heilsuskotið inniheldur annarsvegar grænan drykk sem samanstendur af eplum, sellerí, agúrku, engifer og spínati og hins vegar appelsínugulan drykk sem samanstendur af appelsínum, gulrótum, sítrónu og engifer. “Við trúum því að þessi drykkur fyrir utan það að gleðja okkur þá gefi hann okkur kraft og styrk inn í daginn”. ♥️
Á matseðli vikunnar er að finna fisk tvisvar í viku en við fáum fyrsta flokks fisk beint að norðan frá Baldvini vini okkar í Samherja. Kjöt er einu sinni til tvisvar í viku en lambakjötið kemur frá Lífrænu býli í Skagafirði sem heitir Sölvanes þar eru heiðurshjónin Eydísi og Rúnar. Nautakjötið er lífrænt og kemur frá Bíóbú þar sem vinur okkar Helgi Rafn er vakin og sofin, einnig fáum við lífrænu jógúrtina frá Bíóbú. Kryddin fáum við Kryddhúsinu sem er snilld. Kaja vinkona okkar í Kaja Organic færir okkur allt í heimagerða múslíið okkar og fleiri vörur. Við fáum laktósa mjólkurvörurnar frá Örnu þeirri frábæru fjölskyldu. Við verslum lífræna ávexti og þar er Árný vinkona okkar með okkur í liði. Við erum með grænmetisrétti og pasta á matseðlinum.
Leitast er við að tryggja holla og jafna máltíð með því að skipta disknum í þrjá hluta ferskt grænmeti eða ávexti fyrir trefjar og vítamín, prótín til að byggja upp og flókin kolvetni fyrir jafna orku.
Fallegt myndband sem var tekið á Laufásborg með landsliðskokknum Ísaki Aroni til að auglýsa íslenska lambið 2026.
