Kvæðabarnafjelag Laufásborgar stofnað 8.mars 2023
Stórvinur okkar og kvæðamaður, Steindór Andersen hafði unnið með okkur á hverju ári frá 2008 við að kenna kveðskap og gleðja okkur með því að kveða fyrir okkur og gesti.
Við ákváðum í sameiningu í janúar 2020 að taka saman efnið og gefa það út í hefti. Hann fékk Hilmar vin sinn með sér í lið og þeir tóku upp efnið. Steindór skrifaði niður lögin og gerði það af sinni alkunnu snilld. Júlía Runólfs, móðir og hönnuður kom að hönnun heftisins. Úr varð falleg útgáfa sem við erum stolt af og endalaust þakklát fyrir. Hér er linkur á fallega heftið okkar.
Þetta farsæla og fallega samstarf var óslitið fram til ársins 2024 en elsku Steindór lést 2025, blessuð sé minning þess mæta manns, hann var þjóðargersemi.
Það var svo á vorönn 2023 sem við ákváðum að stofna Kvæðabarnafjelag Laufásborg.
Hér er falleg mynd frá þeim degi en fagnað var í Iðnó með fjölskyldum Laufásborgar.

Hér er linkur á skemmtilega frétt um þetta fallega verkefni okkar.
Ítarlegt viðtal um kveðskapinn á Laufásborg í Stuðlabergi. Útg. Ragnar Ingi Aðalsteinsson.
Þjóðlagahátíðin á Siglufirði 2. – 6. Júlí 2025
Okkur hlotnaðist sá heiður að taka þátt í Þjóðlagahátíðinni í ár og vera með námskeið í kveðskap fyrir born og koma fram í lokin með tónleika.
Þegar þessi hugmynd kemur upp sjáum við strax að enn skemmtilegra væri ef börnin væru með okkur og því komum við fram til foreldra með þetta tilboð. Það væri í boði að koma á Þjóðlagahátíð með okkur, við útvegum gistinguna sem var salur með góðri eldhús og salernisaðstöðu á vegum Björgunarsveitarinnar Strákur. Þar gistum við öll saman á flatsængum.
Við sjáum börnin okkar sem fyrirmyndir fyrir önnur börn. Það mundi lyfta námskeiðinu að þau væru með. Við munum sjálf þegar við byrjuðum 2008 að það er galdur að innleiða kveðskap og fá börnin til að finnast það gaman og vekja áhuga þeirra.
Við áttum saman dásamlega daga með fjölskyldum barnanna á þessari fallegu þjóðlegu tónlistarhátíð sem er stórmerkileg. Hér fyrir neðan eru orð frá foreldri sem við fáum að deila:
Við fjölskyldan vorum að koma af Þjóðlagahátíð á Siglufirði. Laufásborg hafði boðið Unnari að taka þátt ásamt öðrum vinum og vinkonum. Börnin í hinu nýstofnaða Kvæðabarnafélagi mættu á tvær æfingar á degi eitt og tvö og svo voru tónleikar í hádeginu í dag. Við komum í örlítilli súld og gistum í opnu rými á upplásnum dýnum ásamt öðrum foreldrum, börnum og leikskólakennurum. Fljótt brast á nælon blíða og við vorum umvafinn mannlífi og náttúru sem fær mann til að staldra við og þakka almættinu sjálfu. Svona náið samband leikskóla, barna og foreldra er vissulega sérstakt. Börnin eru færð í hendur fagfólks sem á að gæta barnanna og styrkja þau og undirbúa, en þeir þræðir sem hafa nú myndast við starfsfólk Laufásborgar – þegar Unnar á bara viku eftir – eru svo margir og reipin orðin svo mörg og sterk sem halda öllu fjölskyldulífinu okkar gangandi að mér finnst erfitt að hugsa til þess að „útskrifa“ drenginn. Leikskóli kemur og fer úr lífi einstaklings svo hratt þegar um heilt æviskeið er að ræða - en mótunin sem á sér stað á þessum tíma leggur auðvitað grunn fyrir allt sem á eftir kemur. Kannski er þetta um það bil helmingurinn af því sem getur einhverju breytt um þann veg sem einstaklingurinn fetar.
Á Laufásborg fáum við allskonar hugmyndir, frumkvöðlaelimentið er sterkt og oft erum við að gera hluti sem hafa ekki verið gerðir áður. Það eflir okkur og hvetur. Það er samt alltaf markmiðið að hugmyndirnar þjóni öllum og stækki skólann. Það er gaman að gera eitthvað nýtt og það er hægt að fara fram úr sér í þeim aðstæðum. Þess vegna erum við alltaf í endurmati og við vinnum áfram með hugmyndir eða bökkum eða breytum. Ekkert er meitlað í stein við erum lifandi efniviður sem er mjög dýrmætt. Þess vegna erum við mjög þakklát þegar foreldrar koma til okkar með athugasemdir, ábendingar, hugmyndir. Við leggjum okkur fram um að hlusta af virðingu og við erum saman í þessu og allt snýst um að hafa gaman, fara lengra og fara ótroðnarslóðir. Það traust sem við finnum er grundvöllurinn í að við náum markmiðum okkar.
Hér fyrir neðan eru linkar á Þjóðlagahátíðina og ljósmyndir frá okkur.
Takk fyrir.
Dagskráin og námskeiðin
Tónleikar í boði.
Ljóðaland voru þættir á RUV árið 2025 í umsjón þeirra Evu Maríu Jónsdóttur og Péturs Blöndals. Okkur hlotnaðist sá heiður að koma fram í þriðja þætti sem sýndur var 14.október 2025
https://www.mbl.is/frettir/innlent/2026/09/21/bornum_finnst_kvedskapur_skemmtilegur/
