Menningarfáni Reykjavíkurborgar 2014

Menningarfáni Reykjavíkurborgar er viðurkenning sem Reykjavíkurborg veitir fyrir framúrskarandi menningarstarf með börnum og ungmennum. Verðlaunin voru fyrst veitt 2013.

Við vorum mjög stolt af því að hljóta þessa fallegu viðurkenningu 2014. Viðurkenninguna hlutum við fyrir okkar góða lista- og menningarstarf. Við erum mjög þakklát fyrir þessa viðurkenningu, þar sem við leggjum mikið upp úr lista- og menningarstarfi. Enn í dag er listastarfið að vaxa og dafna og síðan viðurkenningin var gefin höfum við stofnað Kvæðabarnafjelag Laufásborgar. Við erum í samstarfi við Listasafn Íslands, Sinfóníuhljómsveit Íslands og Þjóðaróperuna.

Leikskólinn Laufásborg er staðsettur í hjarta Reykjavíkur, gömlu og fallegu húsi með mikla sögu sem jafnan gengur undir nafninu Hamingjuhöllin. Það er mikil menning og saga í nánasta umhverfi skólans og við erum dugleg að nýta okkur það í skólastarfinu með ferðum á listasöfn og gönguferðum og heimsóknum víða.