Námskrá

Námskrá leikskólans Laufásborgar byggir á hugmyndafræði Hjallastefnunnar. Meginreglur liggja til grundvallar allri hugmyndafræði Hjallastefnunnar.

Auk þess starfar Laufásborg að sjálfsögðu samkvæmt aðalnámskrá leikskólanna .


Meginreglur Hjallastefnunnar

Fyrsta meginregla: Börn og foreldrar

Hjallastefnunni er ætlað að mæta hverju barni eins og það er og virða og viðurkenna ólíkar þarfir aldurshópa, kynja og einstaklinga. Skólanum ber einnig að virða valfrelsi og ólíkan áhuga barna og hlúa á víðfeðman hátt að velgengni allra.

Önnur meginregla: Starfsfólk

Hjallastefnunni er ætlað að stuðla að því að jákvæðni, gleði og kærleikur séu ráðandi öfl í samskiptum starfsfólks svo og í öllum samskiptum við börn og foreldra.

Þriðja meginregla: Umhverfi

Hjallastefnunni er ætlað að skapa samfélag innan hvers skóla þar sem jafnvægi, einfaldleiki og gagnsæi er ráðandi í dagskrá, umhverfi og búnaði.

Fjórða meginregla: Efniviður

Hjallastefnunni er ætlað að bjóða upp á leikefnivið og einföld námsgögn þar sem sköpun og ímyndun er í fyrirrúmi í fjölbreyttri reynslu hvers barns.

Fimmta meginregla: Náttúra

Hjallastefnunni er ætlað að kenna börnum að skynja og njóta náttúrulegs umhverfis og virða náttúruna með nýtni, nægjusemi og hófsemi.

Sjötta meginregla: Samfélag

Hjallastefnunni er ætlað að þjálfa aga og hegðun á jákvæðan og hlýlegan en um leið ákveðinn og hreinskiptinn hátt til ábyrgrar þátttöku í lýðræðisþjóðfélagi.