Sagan
Kæru vinkonur og vinir.
Laufásborgin varð leikskóli 1952. Við höfum fagnað 60 ára og 70 ára afmælum Laufásborgar sem hefur það orðspor að vera ljósið í Þingholtunum. Sagan er löng og við höfum metnað til að safna hér saman efni. Saga okkar sem erum á Laufásborg hófst í janúar 2006 og það væri líka gaman að gera því skil. Við þiggjum með þökkum allar sögur og efni. Takk fyrir
Hér er samankomið ýmislegt efni sem varð til á 60 ára afmælinu 25.10 2012
Hér er linkur á afmælisþakkarritið sem gefið var út í tilefni 60 ára afmælisins
Skrúðgöngur eru skemmtilegar og hér eru myndbönd;
Hér og Hér eru myndbönd af skrúðgöngunni á 60 ára afmæli Laufásborgar
Hér og Hér eru myndbönd af skrúðgöngunni á 70 ára afmæli Laufásborgar
Hér er myndamappa frá 60 ára afmælinu.
Hér er myndamappa frá 70 ára afmælinu.
Stofnuð var síða á facebook sem heitir Laufásborg í 60 ár, 1952-2012
linkur á viðtalsverkefni Miðstöðvar munnlegrar sögu fyrir Laufásborg
- Í tilefni 60 ára afmælis leikskólans Laufásborgar, 25. október 2012, óskuðu skólastjórnendur Laufásborgar eftir því að Miðstöð munnlegrar sögu tæki viðtöl við starfsfólk og gesti um sögu Laufásborgar. Verkefnisstjóri Miðstöðvarinnar, Arnþór Gunnarsson, heimsótti Laufásborg á afmælinu og tók viðtöl við eftirtalda einstaklinga:
Björg Hermannsdóttir, f. 19. september 1923
Dóra Halldórsdóttir, f. 1. maí 1956
Gyða Ragnarsdóttir, f. 14. apríl 1933
Hjalti Þórisson, f. 25. desember 1950
Ingibjörg Hannesdóttir, f. 11. nóvember 1935
Kristrún Jónsdóttir, f. 5. mars 1933
Margrét Pála Ólafsdóttir, f. 13. október 1957
Margrét Schram, f. 31. desember 1932
Matthildur Laufey Hermannsdóttir, f. 21. júlí 1961
Ólafur Gíslason, f. 16. nóvember 1936
Ragnheiður Jónsdóttir, f. 21. desember 1928
Sigrún Sigurðardóttir, f. 22. apríl 1960
- Áður en viðtal hófst var viðmælanda gerð grein fyrir því að viðtölin yrðu varðveitt á Miðstöð munnlegrar sögu og yrðu öllum opin eins og almennt gildir um hljóðgögn á Miðstöðinni. Allir viðmælendurnir kváðust samþykkir þessu fyrirkomulagi.
- Upptökurnar eru eign Miðstöðvar munnlegrar sögu og eru varðveittar í safni Miðstöðvarinnar á Landsbókasafni Íslands – Háskólabókasafni. Miðstöðin hefur afhent Laufásborg afrit af upptökunum á tveimur hljóðskjölum:
